Einfaldleiki beinu línunnar er einn af grunnþáttunum í hönnunarstefnu Kia. Beinar línur standa fyrir skýrleika, nákvæmni og sérstöðu og þessir eiginleikar endurspeglast algjörlega í afstöðu og sýn hönnuða Kia. Hönnunin miðar að því stuðla að langvarandi tryggð kaupenda við Kia fyrir tilstuðlan einfaldra forma, vandaðs innanrýmis og smáatriða að utanverðu. Þarna byggjum við á brunni upplifana sem erfitt er að finna í öðrum bílum.
Við gerum draumabílinn þinn að veruleika
Kia hönnun til framtíðar.
Aðalhönnunarmiðstöð Kia í Kóreu (Namyang) sinnir öllum þáttum bílahönnunar, allt frá hönnunaráætlunum og hugmyndafræði til útlitshönnunar, líkanagerðar og þróunar lita og áklæða.
Með hjálp gervihnatta hönnunarmiðstöðva í Bandaríkjunum, Evrópu og Japan greinum við alþjóðlegar stefnur, könnum mismunandi lífsstíl á mörkuðum um allan heim.