Tölum um
Hreyfingin færir okkur lengra. Hugmyndabílarnir eru til marks um viðleitni okkar til nýsköpunar með því að nýta allt sem tæknin hefur upp á að bjóða og hanna bíla með tiltekinni hugmyndafræðilegri nálgun. Með því að leita innblásturs í náttúruna og framsækna tækni getum við mótað samgöngur nútímans. Ferðastu inn í nýjan heim með okkur og upplifðu raunhæfa framtíðarsýn okkar um sjálfbærar samgöngur.
Nýsköpun og nýjar hugmyndir eru okkar einkenni: Við búum til vörur sem eru hannaðar til framtíðar fyrir öll sem vilja stefna lengra í lífinu. Með djarfri og markvissri nálgun gefa vörurnar okkar tækifæri og upplifun sem veitir innblástur og er kveikja nýrra hugmynda.
Breyttum heimi þarf að mæta með nýjum hugmyndum og tækifærum. Við viljum móta framtíðina með nýsköpun og mannvæn sjónarmið að leiðarljósi og með sjálfbærum samgöngulausnum fyrir öll, ekki bara sem bílaframleiðandi heldur sem öflugur drifkraftur fyrir síbreytilegt samfélag og æðri tilgang.
Tækni, notagildi og hönnun SUV flaggskipsins í fyrirferðarlitlum umbúðum
„Hægt er að líta á ánægju (joy) sem andstæðu rökvísinnar (reason). Annar þátturinn er jákvætt og tilfinningalega hlaðið viðbragð á meðan hitt er komið úr rökfestunni. Þegar þessir tveir þættir koma saman sameinast andstæðir eiginleikar þeirra í kraftmikilli og afgerandi hönnun,“
Karim Habib, aðstoðarframkvæmdastjóri og stjórnandi alþjóðlegrar hönnunardeildar Kia
Ný viðmið fyrir EV fólksbíla
Kia EV4 hugmyndabíllinn táknar einfaldleika stoðarinnar „Power to Progress“ í hönnunarstefnunni „Opposites United“. „Power to Progress“ leggur áherslu á þá þjálfun, þekkingu og sköpun sem varð til á nýlegu tímabili umbreytinga með hönnun að leiðarljósi hjá Kia.
Skráðu þig hér til að fá frekari upplýsingar frá Kia um nýja bíla og aðrar fréttir.